Studio Traffic
Dec 30, 2006
goooodbye 2006

vá maður.. 2006 er búið!!.. ertu ekki að fokking djóka, mér finnst eins og það sé nýkomið... en allavegana, er ekki við hæfi að gera árið upp, rifja upp það skemmtilegasta og leiðinlegasta, svona áður en maður skilur það eftir og heldur útí 2007 Wink... (vá maður er allur að verða háfleygur!!.. )

en allavegana.. svona man ég 2006:

janúar
fór aftur suður eftir ágætis frí frá bankanum. og hélt upp á afmælið mitt 14 janúar.. (ég á afmæli aftur 14.janúar núna... just so you know Surprise)... hrúaði saman öllum helstu vinum mínum í partý á Þingholtsstrætið sem var þá mitt heimili og varð það að hinu skemmtilegasta kvöldi
 
..janúar gekk svo bara venjulega fyrir sig- vinna, sofa, djamma... u know!!

febrúar
-byrjaði á svipuðum nótum og Janúar endaði.. vinna, sofa, djamma.. enda átti Ásdís afmæli 6. febrúar og hélt skemmtilega upp á það á tjarnargötunni þar sem ég man eftir jarðaberjakokteilum og allskonar flippi :)
-Við hildur fengum þá hugmynd í hausinn að panta okkur ferð út á einhverja eyju sem við vissum ekkert um - eða jú það eina sem við vissum var að hún hér Fuerteventura!!
-svo kom að íslensku-júróvisjonkeppninni 18.feb..
byrjaði frábærlega... með grímubúiningum úr kolaportinu og eintómri gleði.... ooooog endaði
uppá spítala


...einhvernvegin svona útlítandi með brotið nef, 6 sauma í neðri vör, lika á hökunni, nývöknuð úr roti!!
... frá þessu kvöldi minnist ég einnig þess að hafa rifist við lækna um hvort hydroxicut væri verkjalyf eða ekki... ég vildi halda því staðfastlega fram, en kenni rotinu algjörlega um það Wink

mars
..vá maður gerðist eitthvða merkilegt í mars??- hmm neij ekki sem ég man eftir.. bara vinna, djamma sofa.. þetta venjulega: vera vitlaus og skemmta sér!

apríl
páskar!! fór austur yfir þá til að hlaða batteríin og til að fara á SKÍÐI...., sem var brilliant
var búin að bíða með skíðin fyrir sunnan allan veturinn og vona eftir smá snjó í bláfjöllin, en það gerðist aldrei (eða jú það gerðist en ekki þegar ég hafði tíma!!)- svo austur fór ég og Oddskarðið brást sko ekki!!- alltaf jafn gaman að fara þangað og rifja upp gamla takta úr brautinni Big Smile

maí
SUMAR Í MAÍ!!!
þarna var maður farinn að pæla í næsta hausti, búin að ákveða að hætta í vinnuni og fara í íslensku- og fjölmiðlafræði í háskólanum!!
þarna  fóru austfirðingarnir allir að týnast austur aftur og við hildur bara einar eftir í borginni Shocked.. haha sko einar eftir, fyrir utan hin 100þúsundin eða svo :D
-það var bjart, hlýtt og gaman.. og allar ástæður hafðar fyrir því að skella sér á austurvöllinn með einn kaldan!!

júní
17.júní klárlega það sem stendur uppúr!!
við hildur trompuðum þetta þegar við fórum á handboltalandsleikinn ísland-sverige!!
þvílik snilld!!!
-mættum nú fyrst á hátíðarhöldin niðrí bæ, tilbúnar að hita upp fyrir leikin með einn kaldan!

..svo fórum við uppí höll þar sem tók við endalaus gleði, tár, spenna, öskur og ég veit ekki hvað!!- allavegana endaði þetta á því að við unnum leikinn, allir voru glaðir og við fórum aftur í bæinn!!

fyrir utan þessa gleði þá byrjaði HM - sem skapaði skemmtilega stemningu hjá okkur öllum Wink
...og já ég sendi inn umsóknina mína í HÍ... í VIÐSKIPTAFRÆÐI með áherslu á markaðsfræði!!- uuuu já, eitthvað breyttist þetta- en svona fór hún!

Júlí
maður var farinn að slappast á djamminu og okkar helsta skemmtun var orðið vikulegi rúnturinn í ísbúðina í vesturbæinn að kaupa bragðaref, rúnta niður laugarveginn og gera grín að fulla fólkinu oooog fara í heitumannakeppnina, semsagt gefa mönnum sem við sáum á laugarveginum einkunn frá 0-10.. gaman að geta þess að enginn fór held ég upp fyrir 7, nema Þórhallur Gunnarsson sem fékk held ég 10... annars vorum við góðar að gefa svona -10 frekar Wink
á þessum leik komumst við að því að á íslandi eru sennilega ekkert mikið af heitum mönnum.... en ef þið eruð þarna- þá megiði alveg gefa ykkur fram Big Smile


annars var ég mest í júlí ekki að geta sofið og í einhverju veseni.. var farin að mæta aðeins of oft í Lauga og hélt ég hafði tognað á magavöðva í einhverju kastinu þar...  ég neitaði að fara til læknis og gera mig að fífli þar, þangað til ég komst ekki lengur fram úr.. eftir nokkrar rannsóknir kom í ljós að þetta var sko allt annað en bæði ég og aðrir læknar höfðum haldið
..jæja allavegana, í aðgerð var farið og 5 verstu dagar lífs míns komu í framhaldi af því, þar sem ég lá ósjálfbjarga og ógeðsleg á sjúkrahúsi og gat mig hvergi hreyft nema með hjálp þessa elzkulega starfsfólks, jáh eða mömmu sem var dugleg að koma í heimsóknWink
- en eins ógeðslegt og þetta var, þá urðu næstu vikur þær bestu í heimi... þvíííííí

ágúst
já, ágúst.. fokking sjitt!- oki...
1. ágúst fórum við hildur til Fuerteventura... eyjunnar sem við pöntuðum okkur far til án þess að hafa hugmynd um hvað mundi bíða okkar
..við byrjuðum ferðina mjög vel með bjór í leifsstöð (of course) og svo nokkrum hlátursköstum í vélinni sem vöktu furðu nokkra viðstaddra!!.. haha (en þeir fengu útskýringar seinna)
-ok.. semsagt fórum til Fuerte, sem ég í einu orði get sagt: SNILLLLLLLD.. meira en snilld, bara VÁ, OF, SJÆÆÆÆSE OG SJITT... þetta var bara of gott til að vera satt!.. tókum þessa ferð með trompi, kynntumst ofur miklu fólki, frá allstaðar og skemmtum okkur svo fáránlega vel
- gaman líka að minnast á það að við fórum í heitumannakeppnina okkar niður main streetið á fuerte.. oooog já, meðaltalið þar var u.þ.b. 10.. of heitir menn.. of heitir menn með surfbretti, of heitir menn með surfbretti og pizzu á hjólastýrinu!!
- já allavegana, HM í surf var þarna akkúrat í fullu gangi, og ekki bara það- heldur eru surfskólar á hverju götuhorni og þessi staður þekktur fyrir að vera paradís surfarans..
.. allavegna stendur uppúr: rock café, waikiki, john penn, explorer 2000, emma, sk8er, hollendingarnir, desperatos, vodka í red bull, hræðilega falskt kareoki, ási og arnar, bubbi á svölunum, sálin, flag beach, emil, illa gerði hluturinn, ryan rooney og svo margt margt fleira!!
.. svo skemmtilegt var þetta að við erum að fara aftur eftir einmitt 176 daga!!- thank god :)


..þarna er einmitt hildur, john penn og moi í góðum fíling áður en við héldum heim á leið cry

jæja allavegana.. ekki meira um fuerte- annars fer ég að grenja hérna, svo ágúst er semsagt búin- fyrir utan það að við komum heim 22 og þá fór allt á fullt, flytja á stúdentagarðana, kaupa bækur og byrja í skólanum!!

september
jæja.. skólinn byrjaður og maður að mestu hættur að grenja yfir að vera kominn aftur heim cry.. (hehe neij oki.. ég er ekki svo mikil grenjuskjóða)
en allavegana byrjaður í skólanum og eintóm hamingja í gangi... fór í nýnemaferð þar sem var drukkið og drukkið og drukkið... eftir það var no turning back..
..eftir nýnemaferð var vísó..svo vísó... svo vísó.. og já sagði ég vísó??

hehe en sem betur fer voru þær ekki allar í sama mánuðinum,  og ég fékk mér vinnu á sportbarnum.. ágætis afsökun fyrir að vera ekki að læra og horfa geta horft á sem flesta leiki!!
en sú vinna entist stutt og í enda september var því ævintýri lokið... og já- ég segi ævintýri... þið mörg vitið um hvað ég er að tala Wink

Október
skólinn hélt áfram.... seeeeem þýðir að vísindaferðirnar héldu áfram!!- ég ásamt Önnu Siggu, Hörpu, Rakel og Ragnari vorum ansi dugleg í vísindaferðunum og fór ég í allar nema 1 takk fyrir.... enda sleppir maður ekkert fríu áfengi!!.. fólk.. uuuu neiij!

-en sem betur fer fór ekki allur Október í vísindaferðir.. hjúkket..
Október fór líka í:
OKTÓBERFEST... sem var snilld- gaman í tjaldinu og gaman að klippa Hildi
AIRWAVES... ótrúleg snilld... frábær stemning, skemmtilegt fólk, geggjuð tónlist og frábært fjör!!..
(á andskotinn engar myndir frá airwaves af því að já... myndavélinni minni var stolið á Fuerte :))

Nóvember
pressan var aðeins farin að gera vart við sig í sambandi við lærdóminn... djammið hélt samt aðeins áfram.. enda er maður nú bara í háskóla ;)
Oddi var farinn að bætast skemmtilega mikið við vinahópinn og fór maður að eyða frekar meiri og meiri tíma þar
- annars ekkert merkilegt.. bara hanga og læra og djamma og sofa...

Desember
ertu að fokking djóka
-þvílíkt og annað eins hef ég sjaldan lent í... ok- ég er semsagt í háskóla og fékk alveg að vita það í desember
-þá fékk ég allt í bakið frá fyrri mánuðum... prófin voru semsagt að skella á og ég bara ÚBBOSÍ ÉG KANN EKKI NEITT!!
-Oddi varð minn besti vinur og ég hékk þar endalaust... endalaust og endalaust... hva´ á maður að segja.. 10-12 tíma á dag.. fór reyndar upp í 22 tíma einn daginn
-prófin semsagt skullu á og stresslevelið hækkaði um 700%.. sem er eitthvað annað en ég á að búast við þar sem ég hef aldrei á ævi minni orðið stressuð fyrir próf!!

en prófin klárðuðst.. og augað mitt lika!- prófunum var fagnað miiiiikið 21. des, þar sem við byrjuðum heima hjá mér, kíktum svo í bæinn og fengum snilldarhugmynd að fara á Sálarball á Broadway sem var..... já SNILLD!!

en allavegana... 22. des fór ég austur, 24 des komu jólin og á miðnætti koma áramót!!

svo ef þið náið að lesa þessa færslu fyrir.. 2007 þá vil ég bara enda þetta allt saman á því að segja:

gleðilegt nýtt ár

...hlakka til 2007, búin að plana sumt.. veit allavegana hvernig ég mun byrja árið- en annars hefur farið mér alveg ágætlega að láta allt saman koma í ljós!! Big Smile

...allavegana- þangað til þá..

YNWA

-þl. penn

 




 

Þóra Kristín
December 31, 2006   04:47 AM PST
 
já þú hefur náð að bralla ýmislegt á árinu sé ég :) vonandi verður 2007 jafn viðburðarríkt hjá þér og verðum við að auka kaffihúsaferðinar á fimmtudögum :)
en hafði það sem allra best í kvöld og skemmtu þér vel og gangtu hægt um gleðinnar dyr ha ha
Áramótakveðja Þóra Kristín
Hildur
December 30, 2006   05:26 PM PST
 
ég er mikill aðdáandi svona annála (háfleyg??)

allavega þá er ég hér alveg mjög sátt sko !!! ;) Fuerte er það eina sem ég man frá þessu ári ... ég get svarið það !

SNILLDDDD

gleðilegt ár meistari, ms penn, maestro, ÞÓraLind, frábærasta skemmtilegasta mannvera í heiminum

ekketr svo væmið sko

anyways

cheers m8


Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




~ about.me ~


",,Time you enjoy wasting,
was not wasted."
- John Lennon


QuestionPro Online Survey Software and ContactPro Email Marketing employs an easy to use Wizard interface to author and deploy Web Based and Email Surveys, Newsletters and Campaigns. No knowledge of HTML or programming is required. A comprehensive suite of analysis tools, ranging from Simple Frequency to TURF to Conjoint, are also provided for data analysis. In addition, QuestionPro Web Survey Software provides seamless integration with SPSS and Microsoft Office products.

MicroPoll Free Web Polls provides seamless ondemand Web Polls for your blog/website. Web Poll Script as well as Web Poll HTML code is provided. Setting up Web Polls is as easy as copy and paste.

QuestionPro Online Surveys also licenses its software free to Students and Researchers in the academic community. The projects have to be strictly academic in nature and should not be part of any other funded research or consulting.

Additional Links:


  • Nafn: Þóra Lind Helgadóttir//ms.penn
  • Fæðing: gekk vel þann 14. janúar 1985 á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum
  • Heimili: lindargata 46a- Stekkjarbrekka 12.
  • Hjúskaparstaða: gift mr.penn
  • Fjölskylda: mamma og pabbi, tveir bræður og systir + kisa
  • Skóli: stúdent frá ME//viðskipta-og hagfræðideild í HÍ
  • framtíðarplan: Viðskiptafræði/markaðsfræði og Fuerte
  • vinna: Landsbankinn í Austurstræti
  • Mottó: hlauptu á meðan þú getur



    ~ tag.board ~
       

    ~ more.blogs ~
    ..::Þetta er mitt mál::..


    ...Gestabókin mín
    allar eiginhandaáritanir vel þegnar ;)
    ...


    SENDU MÉR E-MAIL

    SENDU MÉR SMS

    MYNDIRNAR MÍNAR

    Þóru-myndir

    I made a Quiz for you!
    Take my Quiz!
    and then
    Check out the Scoreboard!


    ..::Bloggz::..

    sandran mín eina sanna
    Hildur a.k.a meistarinn
    Kolla og Ásdís-systir og snillingar
    Borgar Sigurður??
    Hulda rós
    Maggi kall-min store bro
    Þóra króna
    Heiða Rut
    Silja Baldó
    Anna Sigríður
    Berglind ösp
    Gunnzi Ragg
    Doddi
    Lindan
    snær..ekki lengur í japan!
    Urður mín
    Guðrún Veiga
    Geira Maja
    Bjórunn
    Arna í London..eða kína
    Dagný sey.
    WWWN
    Hildur Karen
    Harpa Vilbergs
    Caberson




    ..::Djammið::..

    Djammsíða Austurlands
    Café Kósý
    Sólon
    Nelly´s
    Gaukur á stöng
    Glaumbarinn


    Grandið
    Vegamót
    prikið

    ..::Menntunin::..

    Háskóli Íslands
    Menntaskólinn á Egilsstöðum
    Fjölbraut í breiðholti
    nemendafélag FB
    visindavefur HI


    ..::Uppruninn::..

    Heimahagarinir
    norð-austur hornið
    ..::Nauðsynin::..

    einkabankinn
    Google
    batmaninn
    Heitar fréttir
    Fótbolti.is
    Liverpool FC
    Uppskriftir??
    heitur póstur
    Leiktu þér

    ~ fly.away ~
    Contact Me
    If you want to be updated on this weblog Enter your email here:
    RSS Atom
    rss feed

    ~ my.caledars ~
    << December 2006 >>
    Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
     01 02
    03 04 05 06 07 08 09
    10 11 12 13 14 15 16
    17 18 19 20 21 22 23
    24 25 26 27 28 29 30
    31

    ~ credits ~
    Designed by dragonfae
    Thanks to blogskins.com

    Wind Faeries