síðan mín er búin að vera meðvitundarlaus seinsutu misserin... ástæða þess er sú að ég hef bara ekkert að segja!!
dagarnir hafa verið afar svipaðir: sofa, vakna, sofa smá meir, vakna aftur, fara í skólann, odda, heim, horfa á sjónvarpið, sofa...
...svo einstöku sinnum bætist aðeins við þessa rútínu hlutir eins og bjór, vísindaferðir og djamm!!... sem er auðvitað ekkert nema heilsubætandi og sálfræðilega hollt!
en nú taka prófin við, guð hjálpi mér!!!
-6 dagar í fyrsta prófið og ég á ennþá eftir að komast að því hvað í andsk... ég er að læra!!
-svo er auðvitað sálarball 21. des.. próflokadjamm þar sem ég verð fyrsta manneskjan á staðinn!!
-og að lokum er það gamla góða austurlandið 22. des þar sem ég fæ að fara aftur heim til mín og borða mat úr ofni!
en sjónvarpið kallar, svo það er best að sinna því!
YNWA!
-Penn